Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til söluEr laus straxNýbygging

Valshlíð 3 - íbúð 406

102 Reykjavíkurborg Fastanr. 2532687 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 26
Ásett verð 149.900.000 kr. 1.268.190 kr./m²

Eignin

  • 118,2m² Flatarmál
  • 5 Herbergi
  • 4 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Fjórða hæð
  • Sameiginlegur inngangur
  • Bílskýli
  • Svalir
  • Verönd
  • Lyfta
  • Útsýni
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax
  • Nýbygging

Skráning

Fasteignanúmer
2532687
Merking
01-04-06
Tegund
Íbúð
Landeignarnúmer
223517

Lýsing á eign

Miklaborg kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 406.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Með í kaupum á íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga með íbúð).

Á sölusíðu eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 98,175,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Gabriel Mána Hallsson löggiltan fasteignasala í síma 772-2661 eða [email protected] eða Svan Gunnar Gunnlaugsson í síma 697-9300 eða [email protected]

Björt og stórglæsileg 4-5 herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í Hlíðahorni. Birt stærð er 118,2 fm þar af 11,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin, sem er horníbúð og því með glugga á 3 vegu, skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir og svalir, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3+.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri inn í rúmgott alrými, eldhús með stórri eyju með vaski og stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar útsýnissvalir (vestur) og tæplega 30 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott. Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr burstuðu krómi. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og vínkælir. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. 3 góð svefnherbergi með skápum, en hægt væri að fækka um eitt herbergi og stækka þannig alrými sem því nemur. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr burstuðu krómi. Sér þvottaherbergi inn af baðherbergi með ljósum innréttingum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0028. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang.

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sameiginlegur inngangur
Upphitun
Hitaveita með sameiginlegum mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskýli
  • Svalir
  • Verönd
  • Lyfta
  • Útsýni
  • Aðgengi fyrir hjólastóla
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax
  • Nýbygging

Staðsetning

Valshlíð 3 - íbúð 406, 102 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Nýtt
Vatnslögn
Nýtt
Frárennslislögn
Nýtt
Raflögn
Nýtt
Þak
Nýtt
Gluggar
Nýtt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2424208 Aðaleining Íbúðareign
Byggt ÓskráðStærð 118,2 m²Herbergi 4Byggingarefni SteyptByggingarstig B1 - Byggingarleyfi
HúsmatÓskráð
BrunabótamatÓskráð
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Gabriel Máni Hallsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Miklaborg
MiklaborgHallgerðargata 13, 105
149.900.000 kr.Valshlíð 3 - íbúð 406
Hafa samband Gera tilboð