Valshlíð 3 - íbúð 312
Eignin
- 103,6m² Flatarmál
- 3 Herbergi
- 2 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Þriðja hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532650
- Merking
- 01-03-12
- Tegund
- Íbúð
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Miklaborg kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 312.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning.
Á sölusíðu eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Gabriel Mána Hallsson löggiltan fasteignasala í síma 772-2661 eða [email protected] eða Svan Gunnar Gunnlaugsson í síma 697-9300 eða [email protected]
Virðuleg og vönduð 3ja herbergja sérlega rúmgóð útsýnisíbúð á 3. hæð á horni Hlíðarhorns (vestur/suður). Birt stærð er 103,6 fm þar af 7,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.
Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með skáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afþiljuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0045. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar