Valshlíð 1 - íbúð 402
Eignin
- 83,1m² Flatarmál
- 2 Herbergi
- 1 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Fjórða hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Bílskýli
- Svalir
- Verönd
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Er laus strax
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532683
- Merking
- 01-04-02
- Tegund
- Íbúð
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Miklaborg kynnir: Valshlíð 1 - Íbúð 0402.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Með í kaupum á íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga með íbúð).
Á sölusíðu eignarinnar í færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 80,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á Gabriel Mána Hallsson löggiltan fasteignasala í síma 772-2661 eða [email protected] eða Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697-9300 eða [email protected]
Vönduð og stórglæsileg tvílýst 2ja herbergja rúmgóð horníbúð á 4. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Birt stærð er 83,1 fm þar af 5,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými, þaksvalir og svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með sérstaklega vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, Witt og Temptech í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3.
Nánari lýsing: Í opnu anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á rúmlega 20 fm þaksvalir í suður með tengi fyrir heitan pott og að auki austusvalir sem vísa inn í inngarð. Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vínkælir. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með mattri áferð og speglaskápur. Blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Afmörkuð aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0011 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og sérrekinn bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Bílskýli
- Svalir
- Verönd
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Er laus strax
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar