Haukahlíð 10 - íbúð 527
Eignin
- 95,7m² Flatarmál
- 4 Herbergi
- 3 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Fimmta hæð
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2532746
- Merking
- 01-05-27
- Tegund
- Íbúð
- Byggingarár
- 2025
- Landeignarnúmer
- 223517
Lýsing á eign
Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 527 - Þakíbúð. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í febrúar 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 89,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða [email protected].
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Glæsileg og vönduð 4ja herbergja þakíbúð á 5. hæð. Íbúðin er á horni og því tvílýst. Birt stærð er 95,7 fm þar af 11,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í opið anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í bjart og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar svalir í austur. Góður fataskápur við inngang. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gott hjónaherbergi með góðum fataskápum. 2 svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 183 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í langtímaleigu og aðild að rekstrarfélagi bílakjallara.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða [email protected].
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Nýbygging
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Nýtt
- Vatnslögn
- Nýtt
- Frárennslislögn
- Nýtt
- Raflögn
- Nýtt
- Þak
- Nýtt
- Gluggar
- Nýtt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar